Um okkur

Fatahreinsunin Hraði hefur verið starfrækt frá árinu 1966 sem alhliða fatahreinsun og þvottahús og byggir því á gömlum og traustum grunni. Góð þjónusta er lykillinn að velgengni fyrirtækisins.

Alhliða fatahreinsun og þvottahús síðan 1966

Fatahreinsunin Hraði hefur verið starfrækt frá árinu 1966 sem alhliða fatahreinsun og þvottahús og byggir því á gömlum og traustum grunni. Góð þjónusta er lykillinn að velgengni fyrirtækisins. Hraði ehf. starfar skv. leyfi frá Umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar.

  • Við önnumst allar tegundir af þvotti og fatahreinsun fyrir einstaklinga og fyrirtæki og leggjum áherslu á traust og vönduð vinnubrögð.
  • Starfsfólk okkar nýtur trausts. Það hefur áralanga reynslu af fatahreinsum og meðhöndlun á þvotti.
  • Við búum yfir besta tækjakosti sem völ er á og erum í stöðugri þróun varðandi nýjar aðferðir við fatahreinsun og meðhöndlun á þvotti. Það tryggir hámarks árangur.
  • Í dag sérhæfir fyrirtækið sig í meðhöndlun á viðkvæmum og vandmeðförnum fatnaði.
  • Með nýjum og fullkomnari efnum til blettahreinsunar á fatnaði býðst viðskiptavinum okkar enn betri og fullkomnari þjónusta en áður hefur þekkst.
  • Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á viðgerðaþjónustu á fatnaði, gluggatjöldum og hverju sem er. Vönduð vinnubrögð.
  • Hraði sækir og sendir persónulegan fatnað til starfsmanna fyrirtækja og stofnana.
  • Hraði sækir og sendir þvott til fyrirtækja og stofnana.

Ef þú gleymdir að sækja fötin þín þá er neyðarsími utan opnunartíma: 859 9466. Afgreiðslugjald utan opnunartíma er 3.500 kr.

Algengar spurningar

Er hægt að fá fatahreinsun samdægurs?

Já, það er oftast hægt, ef komið er snemma dags.

Hreinsið þið sængur ?

Hreinsið þið leður eða rúskinn ?

Nei

Get ég sótt fötin mín utan opnunartíma ?

já, það er hægt að hringja í neyðarnúmer 859 9466. Gjald er 3.500 kr.

Er opið um helgar ?

Nei

Góð þjónusta

Við hreinsum meðal annars:

  • Gluggatjöld og áklæði
  • Sængur og kodda
  • Svefnpoka og kerrupoka
  • Dúnúlpur, kjóla og skyrtur

Samkvæmisfatnað og fínni fatnað

  • Kápur og skyrtur
  • Dúka og vinnufatnað
  • Almennan þvott
  • Þvott fyrir hótel og fyrirtæki

Hér erum við

Hraði ehf

Ægisíðu 115, 107 Reykjavík

552-4900

hradi@fatahreinsun.is

Virka daga: 8:00-18:00

Sendu okkur skilaboð